Ístölt Suðurlands næsta laugardag
Ákveðið hefur verið að halda Ísmót Suðurlands næstkomandi laugardag, 12. mars, í Gljánni í Þykkvabæ.
Veðurspá fyrir vikuna gefur tilefni til að ætla að ísinn verði traustur og veðrið gott.
Keppt verður í A- og B-flokki gæðinga ásamt tölti.
Í tölti verða fjórir flokkar: Opinn flokkur, Bændatölt, Frúartölt og Tölt unga fólksins (16 ára og yngri)
Eins og á síðasta ári verða vinningar hagkvæmir og glæsilegir.
Skráning fer fram á föstudag (til miðnættis) á netfangið [email protected]
Skráningagjald er 2.000 kr. á hest.
Upplýsingar í síma 822-2223.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH