Íþróttamaður Mosfellsbæjar
Úrslit í kjöri íþróttakonu og íþróttakarls Mosfellsbæjar voru tilkynnt í verðlaunahófi sem fram fór í Íþróttamiðstöðinni að Varmá á fimmtudaginn að viðstöddu fjölmenni.
Árið 2015 var besta keppnisár Reynis frá upphafi. Þar bar hæst heimsmeistaratitill á gríðarsterku móti í Henning í Danmörku og tvenn silfurverðlaun sem var besti árangur einstakra á öllu mótinu. Reynir var tvöfaldur íslandsmeistari í samanlögðum fimmgangsgreinum og í slaktaumatölti, þar sem hann hlaut hæstu einkunn 8,88. Reynir er mjög ofarlega á heimslistum FEIF World-ranking 2015 sem eru heimssamtök Íslandshesta.
Á facebook síðu Reynis segir hann gamlan draum hafa verið að rætast og þakkar öllum þeim sem studdu hann. „Það er gamall draumur að verða íþróttamaður Mosfellsbæjar og góð tilfinning að vera það. Takk allir sem kusu mig og takk fyrir allar góðar kveðjur .“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH