Íþróttamót Gusts: Jöfn keppni í 1. flokks fjórgangi – video
Hér má sjá myndskeið frá A-úrslitum í fjórgangi 1. flokks á íþróttamóti Gusts um helgina. Stóð keppni um gullið á milli þeirra Heiðrúnar Ósk Eymundsdóttur á Fold frá Miðsitju og Önnu Björk Ólafsdóttur á Stefni frá Kópavogi, og úr varð að þær hlutu sömu lokaeinkunn. Urðu þá dómarar velja sigurvegararann og hampaði Heiðrún Ósk bikarnum að lokum.
Úrslit urðu eftirfarandi:
1.-2. Heiðrún Ósk Eymundsdóttir Fold frá Miðsitju 7,20
1.-2. Anna Björk Ólafsdóttir Stefnir frá Kópavogi 7,20
3. Snorri Dal Helgi frá Stafholti 6,77
4. Jón Gísli Þorkelsson Breki frá Kópavogi 6,43
5. Maria Greve Zara frá Álfhólum 6,30
A landsliðshópur Íslands
Agnar Snorri ráðinn til norska landsliðsins