Jafnvægi hestsins byrjar hjá knapanum
Afreksknapinn Árni Björn Pálsson leggur ríka áherslu á líkamlegt atgervi knapans og mikilvægi styrks og jafnvægis í reiðmennsku. Mynd: Eiðfaxi.
Við gerum miklar kröfur til hestsins. Hann á að vera sterkur, sveigjanlegur, í góðu jafnvægi og tilbúinn til þeirra verkefna sem við ætlum honum. En gerum við sömu kröfur til okkar sjálfra?
Í lokagrein greinaraðar Eiðfaxa, Knapinn sem íþróttamaður, beinum við sjónum að reynslu afreksknapans Árna Björns Pálssonar. Hann hefur um árabil verið meðal fremstu knapa landsins og er menntaður tamningamaður og reiðkennari frá Háskólanum á Hólum.
Árni Björn leggur áherslu á að líkamlegt form knapans, jafnvægi og stöðugleiki í þjálfun skipti miklu máli, bæði í daglegum störfum og á keppnisvellinum.
Meira en að sitja á hesti
Starf atvinnuknapans er líkamlega krefjandi og felst í mun fleiru en reiðmennskunni sjálfri. Árni Björn bendir á að tamningar, þjálfun, fóðrun og hirðing séu allt verkefni sem reyni á líkamann.
Með aukinni þekkingu og breyttum vinnubrögðum hafi starfið þó orðið skilvirkara og léttara fyrir tamningamenn en áður.
Sjálfur leggur hann áherslu á að halda sér í góðu líkamlegu formi og æfir fjórum sinnum í viku heima hjá sér. Þar notar hann hlaupabretti, lóð og teygjur.
„Ég hugsa markvisst um heilsuna,“ segir hann og bendir á að gott líkamlegt form hjálpi honum við dagleg störf.
Knapinn þarf að skynja hestinn
Þegar Árni Björn er spurður hvað skipti mestu máli líkamlega hjá góðum knapa nefnir hann ekki styrk eða úthald fyrst.
„Mér finnst mestu máli skipta að knapinn skynji hestinn í gegnum sætið. En ekki bara með höndunum.“
Þar á eftir komi jafnvægi, styrkur og hreyfanleiki.
Hann segist stöðugt leitast við að skilja hestinn og halda eigin jafnvægi. Það sé færni sem þróist með mikilli æfingu.
„Jafnvægi hestsins byrjar í jafnvægi knapans.“
Árni Björn bendir á að knapinn noti ásetuna til að hjálpa hestinum að finna eigið jafnvægi. Með líkamsbeitingu sinni geti hann ýmist stutt við hestinn eða truflað hann.
Þetta sé einnig ástæðan fyrir því að hann leggi áherslu á alhliða líkamsþjálfun og að jafna eigin misstyrk, rétt eins og hann geri við þjálfun hestanna.

Árni Björn Pálsson leggur áherslu á að knapinn geti skynjað hestinn í gegnum sætið og unnið með honum í jafnvægi. Mynd: Henk & Patty
Mótið getur byrjað á morgun
Árni Björn breytir ekki sérstaklega um áherslur í eigin líkamsþjálfun þegar stórmót nálgast. Hann vill vera líkamlega tilbúinn allt árið.
„Ég er í formi. Mótið getur byrjað á morgun mín vegna.“
Að hans mati snýst þetta fyrst og fremst um stöðugleika í þjálfuninni fremur en sérstakan undirbúning rétt fyrir keppni. Hann gætir þó sérstaklega að mataræði og svefni í aðdraganda stórra viðburða.
Árni Björn telur jafnframt að aukin vitund sé meðal knapa um mikilvægi eigin líkamsþjálfunar, ekki síst hjá þeim sem stefna að árangri á hæsta stigi.
Stöðugleiki er lykillinn
Þegar Árni Björn er beðinn um að gefa ungum knöpum ráð varðandi eigin líkama og líkamlega þjálfun eru skilaboðin einföld.
„Taka lítil skref í byrjun, og bæta svo ofan á. Stöðugleiki er lykillinn.“
Hann nefnir einnig mikilvægi reglulegrar hreyfingar, góðs mataræðis og nægs svefns og bætir við einu ráði sem á eflaust erindi til marga:
„Minnka skjátímann!“
Hinn helmingur afreksins
Í greinaröðinni Knapinn sem íþróttamaður höfum við skoðað áhrif líkamsbeitingar knapans á hestinn, mikilvægi styrks og líkamsvitundar og hvernig líkamlegt ástand knapans getur haft áhrif á reiðmennskuna.
Svör Árna Björns draga fram mikilvægan punkt. Líkamleg þjálfun knapans er ekki aðeins undirbúningur fyrir stórmót heldur hluti af daglegri vinnu og langtímauppbyggingu.
Það þurfa ekki allir knapar að vera afreksknapar. En allir geta hugað betur að eigin líkama og því hvernig þeir beita honum í hnakknum.
Við leggjum mikla vinnu í að undirbúa hestinn fyrir þau verkefni sem við ætlum honum. Kannski ættum við að gera sömu kröfur til okkar sjálfra.
Því þegar við setjumst í hnakkinn er hesturinn ekki eini íþróttamaðurinn í sambandinu.
Hér má finna greinarnar
Knapinn sem íþróttamaður
Er vandinn alltaf hjá hestinum? | Eidfaxi.is
Margareterhof er selt
Framlengdur skráningafrestur í Suðurlandsdeild