Jafnvíg alhliða hryssa
202 hryssur voru sýndar í flokki fimm vetra hryssa. Efsta hryssan í þessum flokki er Elja frá Sauðholti 2, undan Brimni frá Ketilsstöðum og Góu frá Leirulæk. Elja er jafnvíg alhliðahryssa, skeiðið best. Efsta hryssan í þessum flokki á Landsmóti varð aftur á móti Viðja frá Hvolsvelli, undan Frakki frá Langholti og Vordísi frá Hvolsvelli. Viðja er mjúkvaxin og jafnbyggð hryssa, á afar auðvelt með að ganga í réttri líkamsbeitingu, með fallega hvelfingu í hálsi og er í raun hestagull. Þriðja í þessum flokki er svo Kolka frá Breiðholti í Flóa en hún er undan Grun frá Oddhóli og Gunnvöru frá Miðsitju, því alsystir Villings frá sama stað. Kolka hlaut 8,45 í aðaleinkunn en fyrir hæfileika fékk hún hvorki meira né minna en 8,70. Ein hryssa er þó með hærri aðaleinkunn en það er Lukka frá Þúfu en hún hlaut 8,71 fyrir hæfileika og varð fjórða í þessum flokki. Lukka var sýnd af Mette Mannseth en Mette hlaut FT fjöðrina fyrir sýningu sína á hryssunni.
AE Nafn Faðir Móðir
8.56 Elja Sauðholti 2 Brimnir Ketilsstöðum Góa Leirulæk
8.50 Viðja Hvolsvelli Frakkur Langholti Vordís Hvolsvelli
8.45 Kolka Breiðholti í Flóa Grunur Oddhóli Gunnvör Miðsitju
8.43 Lukka Þúfum Trymbill Stóra-Ási Happadís Stangarholti
8.42 Óskastund Kommu Kappi Kommu Ópera Möðrufelli
8.41 Garún Koltursey Dugur Þúfu í Landeyjum Kjarnorka Sauðárkróki
8.41 Þökk Árbæjarhjáleigu II Jarl Árbæjarhjáleigu Þerna Skarði
8.39 Kleópatra Lynghóli Aron Strandarhöfði Leista Lynghóli
8.39 Katla Feti Kiljan Steinnesi Gréta Feti
8.37 List Þúfum Trymbill Stóra-Ási Lygna Stangarholti
Á myndinni hér fyrir neðan má sjá Elju frá Sauðholti 2 sem var hæst dæmda fimm vetra hryssan, sýnd á síðsumarssýningu á Selfossi. Knapi er Jóhann K. Ragnarsson
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH