„Jákvæðni og reyna að ríða kraftmikið en fallega“
Gústaf Ásgeir og Póstur. Ljósmynd: Eiðfaxi
Tíminn flýgur! Í sumar snýr Landsmót hestamanna aftur heim í að Hólum í Hjaltadal. Mörg okkar muna stemninguna árið 2016, þegar Landsmót fór síðast fram á Hólum, eins og hún hefði átt sér stað í gær. Við skulum rifju upp helstu augnablikin frá því móti til að hita upp fyrir sumarið, nú er komið að því að fjalla um keppni í ungmennaflokki.
Gústaf og Póstur sigurvegarar á LM2016
Keppni í ungmennaflokki á þessu móti var líkt og jafnan er, jöfn og spennandi. Að lokinni sérstakri forkeppni var það Gústaf Ásgeir Hinriksson sem tók forystu á Pósti frá Litla-Dal með einkunnina 8,64, skammt undan var Dagmar Øder Einarsdóttir á Glóey frá Halakoti með 8,62 og svo komu þau jöfn í 3-4 sæti, Róbert Bergmann á Brynjari frá Bakkakoti og Guðmunda Ellen Sigurðardóttir á Rauð frá Syðri-Löngumýri, með einkunnina 8,60. Í milliriðlum var það svo Dagmar sem tók forystu á Glóey með 8,66, einungis aukastöfum hærri en Gústaf Ásgeir á Pósti. Í þriðja sætinu þar var Guðmunda Ellen á Rauð með 8,58.
Þegar í A-úrslit var komið var það Gústaf Ásgeir og Póstur sem höfðu sigur eftir harða baráttu við Guðmundu Ellen og Rauð, hlutu þeir Gústaf Ásgeir og Póstur 8,88 og Guðmunda Ellen og Rauður 8,84. Í þriðja sæti varð svo Dagmar á Glóey með 8,70.
Stefnan sett á toppbaráttu í sumar
Gústaf segir að undirbúningurinn fyrir mótið árið 2016 hafi verið markviss en hann og teymið hans hafi lagt áherslu á að halda Pósti ferskum. „Ég man að við spöruðum hestinn talsvert í undirbúningnum og pössuðum upp á að ríða honum ekki mikið hratt til þess að reyna passa að hann væri ferskur og uppi í herðunum, sem reyndist vel í þetta skiptið.“
Keppnin var þó ekki alveg án áskorana, því áreitið í kringum völlinn truflaði Póst örlítið. „Ég man eftir því að hann var mjög hræddur við langa LED-skiltið og þurfti að breyta milliriðlaprógramminu og ríða bara yfirferðartölt og brokk nær skjánum, því hann fældist síður á því.“
Aðspurður um Póst sjálfan, lýsir Gústaf honum sem miklum gæðingi með sterkan persónuleika. „Póstur er fallegur og býr yfir óvanalega miklu rými á tölti og brokki. Mikill karakter.“
Þegar talið berst að framtíðinni og komandi Landsmóti á Hólum, er ljóst að metnaðurinn er sömuleiðis til staðar. „Ég er með 2-3 hross sem gætu blandað sér í baráttu í A-flokks keppni. Stefnan er allavega sett á toppbaráttu.“
En hvað skyldi vera lykillinn að árangri að hans mati sem hann getur deilt með yngri knöpum sem stefna á keppni á Landsmóti í sumar? „Jákvæðni og reyna að ríða kraftmikið en fallega,“ segir Gústaf að lokum.

Gústaf fagnar sigri í ungmennaflokki
Við skulum rifja augnablikið upp og heyra viðtal við Gústaf Ásgeir sem tekið sem úr umfjöllunarþætti um Landsmót 2016 sem sýndur var á RÚV og er einnig að finna í Gullkistunni á EiðfaxaTV.
Sigurvegarar í ungmennaflokki á Landsmóti
2024 Matthías Sigurðsson, Tumi frá Jarðbrú, Fákur 9,03
2022 Benedikt Ólafsson, Biskup frá Ólafshaga, Hörður 8,80
2018 Bríet Guðmundsdóttir, Kolfinnur frá Efri-Gegnishólum, Sprettur 8,83
2016 Gústaf Ásgeir Hinriksson, Póstur frá Litla-Dal, Fákur 8,88
2014 Gústaf Ásgeir Hinriksson, Ás frá Skriðulandi, Fákur 8,82
2012 Kári Steinsson, Tónn frá Melkoti, Fákur 8,78
2011 Rakel Nathalie Kristinsdóttir, Vígar frá Skarði, Geysir 8,85
2008 Grettir Jónasson, Gustur frá Lækjarbakka, Hörður 8,80
2006 Freyja Amble Gísladóttir, Krummi frá Geldingalæk, Sleipnir 8,64
2004 Heiðrún Ósk Eymundsdóttir, Gola frá Ysta-Gerði,
2002 Heiðrún Ósk Eymundsdóttir, Gola frá Ysta-Gerði, 8,66
2000 Karen Líndal Marteinsdóttir, Manni frá Vestri-Leirárgörðum, Dreyri 8,69
1998 Davíð Matthíasson, Háfeti frá Þingnesi, Fákur 8,65
Landsmót 2026 í beinni á EiðfaxaTV
Með því að velja ársáskrift að EiðfaxaTV slá áskrifendur tvær flugur í einu höggi: Þeir fá tæpa 4 mánuði frítt, miðað við mánaðaráskrift, og fá aðgang að Landsmóti hestamanna innifalið í pakkanum. Vert er að vekja athygli á því að Landsmótið verður ekki innifalið í hefðbundinni mánaðaráskrift og því mikill fjárhagslegur ávinningur fólgin í því að næla sér í ársmiðann strax.
„Jákvæðni og reyna að ríða kraftmikið en fallega“
Agnar og Kvistur á nýju hallarmeti
Enn þarf að fresta skráningum á kynbótasýningar
Fyrstu Skeiðleikar Skeiðfélagsins í kvöld
WR Íþróttamót Sleipnis heldur áfram í dag
Um 700 gestir á Æskan og hesturinn og frumkvöðlar heiðraðir