Járningadagar

  • 17. október 2012
  • Fréttir
Járningadagar

Nú styttist óðfluga í Járningadaga Járningamannafélags Íslands. Dagskráin fer fram dagana 26. og 27. október n.k. að Völlum í Ölfusi í  glæsilegri starfsaðstöðu og húsakynnum Eldhesta. Í boði verður fjölbreytt dagskrá sem byggist upp á námskeiði, fræðslu og sýningum sem undirstrika mikilvægi góðrar hófhirðu og járninga þar sem fagleg vinnubrögð og líffræðileg þekking eiga að koma saman. Á námskeiðinu verður tekið fyrir hvernig framkvæma má formbreytingar á skeifum og hvaða áhrif þær hafa á hófform og hreyfiferil hófa. Laugardaginn 27. október er Dagur járninga opin dagskrá fyrir almenning og Íslandsmót í járningum.

Dagskrá:
Föstudagurinn 26. október
 
14:00-18:00
Námskeið um formbreytingar á skeifum. Leiðbeinandi er Jesper Eriksson Eurenius margfaldur Svíþjóðar- og Norðurlandameistari í járningum. Jesper hefur einnig keppt á heimsmeistaramóti í járningum og verið þar í verðlaunasæti. Þá hefur hann töluverða reynslu af íslenskum hestum frá heimalandi sínu sem járningamaður og hestamaður. Hann hefur víða haldið námskeið og einnig verið duglegur að sækja sér vitneskju frá öðrum fræði- og járningamönnum víða um heim.
Dagskráin hefst á stuttum fyrirlestri og kynningu þar sem farið verður yfir helstu atriði varðandi heitjárningar og smíði á skeifum. Þar á eftir verður verkleg kennsla í formbreytingum á skeifum og vinnu í eldi. Reynt verður að stilla verkefnum þannig upp að allir fái eitthvað við sitt hæfi og reynsla í eldsmíði eða heitjárningum er ekki nauðsynleg. Tilgangur námskeiðsins er að þátttakendur fái hugmyndir um hvernig hægt sé að nota skeifurnar til að leiðrétta skekkju í hófum og hvaða áhrif er hægt að hafa á hreyfiferlið með jafnvel litlum og einföldum formbreytingum. Þátttakendur eru hvattir til að mæta með steðja og þau verkefnfæri sem þeir eiga. Þeir sem eiga ofna eru beðnir um að hafa þá meðferðis en þó verða nokkrir ofnar á staðnum og er lítið mál fyrir fleiri en einn að samnýta hvern ofn og jafnvel hægt að skiptast á um að vinna við hvern steðja.
 
19:00
Kvöldverður.
20:00-21:30
Opin félagsfundur  Járningamannafélags Íslands
 
Laugardagurinn 27. október.    
 
9:30 -12:00
Námskeið og sýnikennsla þar sem tekið verður fyrir hvaða áhrif formbreytingar á skeifum hafa á hófform og hreyfiferli hófa. Unnið verður með hesta og tilvalin leið fyrir þá sem námskeiðið sækja að fá hugmyndir um hvernig leysa megi ýmiskonar algeng vandamál s.s. ágrip, sprungur í hófum o.fl. 
 
12:00 – 13:00
Hádegishlé.
 
13:00 – 15:00
Dagur járninga. Opin dagskrá fyrir almenning, með verksýningum og skemmtun.
 
Verkstöðvar (sýningar e.t.v. fleiri en ein í gangi á sama tíma)
o Heitjárning.
o Líffræðileg fræðsla.
o Skeifnasmíði
o Hófsnyrtingar.
o Vörukynningar.
 
15:00 – 16:30
Kaffihlé.
 
15:30 – 18:00
Íslandsmót í járningum. Styrktaraðili Mustad og O.Johnson og Kaaber ehf.
Verðlaunaafhending og þingslit.
 
Sett upp með fyrirvara um lítilsháttar breytingar.
 
Skráning:  [email protected]  eða í síma 8498149 og 8221959 (fram komi nafn, kennitala, heimili og sími). Mikilvægt er að skrá sig fyrir 24. október!
Þátttökugjald: Greiðist fyrir námseiðið á reikningsnúmer 310-26-006111, kt.611106-0760. Senda staðfestingu á netfangið [email protected]  
Verð: Námskeiðsgjald kr. 20.000, innifalið námskeið, kvöldverður á föstudegi og hádegisverður á laugardegi.
 
Laugardagur eftir hádegi Dagur járninga og járningarkeppni frír aðgangur. Skráning þátttöku í járningakeppni: [email protected]  eða í síma 8498149 og 8221959 (fram komi nafn, kennitala, heimili og sími). Mikilvægt er að skrá sig fyrir 26. október!
 
Gistiaðstaða:
Hægt er að fá gistingu með morgunverði  hjá Hótel Eldhestum á vægu verði. 
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link