FEIF Jóhann og Evert efstir á stöðulista ársins í fjórgangi

  • 14. nóvember 2026
  • Fréttir

Jóhann Rúnar Skúlason og Evert fra Slippen HM2025 Ljósmynd: Henk & Patty

Ásmundur Ernir og Hlökk í öðru sæti

Á vefsíðu FEIF hefur stöðulisti ársins (e. annual ranking) í fjórgangi (V1) verið birtur. Listinn byggir á árangri knapa og hesta í forkeppni á alþjóðlegum mótum (WorldRanking) á árinu, þar sem tvær hæstu einkunnir parsins eru lagðar saman og meðaltal þeirra ræður röðuninni.

Efstir á stöðulistanum í fjórgangi eru Jóhann R. Skúlason og Evert fra Slippen með meðaleinkunnina 8,035 (8,10 og 7,97). Jóhann og Evert hafa átt frábært keppnistímabil en parið vermir einnig annað sætið á árslistanum í tölti T1.

Í öðru sæti eru Ásmundur Ernir Snorrason og Hlökk frá Strandarhöfði með 8,020 í meðaleinkunn (8,17 og 7,87), en þau eiga hæstu stöku forkeppniseinkunn ársins á listanum. Jóhann og Ásmundur eru jafnframt einu knaparnir sem rjúfa átta stiga múrinn í meðaleinkunn í greininni í ár.

Í þriðja sæti eru þau Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir og Flóvent frá Breiðstöðum með glæsilega meðaleinkunn upp á 7,985 (8,10 og 7,87).

Topp 10 á stöðulista ársins í fjórgangi V1:

1. Jóhann R. Skúlason / Evert fra Slippen (DK) – 8,035 (8,10 ; 7,97)
2. Ásmundur Ernir Snorrason / Hlökk frá Strandarhöfði (IS) – 8,020 (8,17 ; 7,87)
3. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir / Flóvent frá Breiðstöðum (IS) – 7,985 (8,10 ; 7,87)
4. Frauke Schenzel / Hulinn frá Breiðstöðum (DE) – 7,935 (8,00 ; 7,87)
5. Jakob Svavar Sigurðsson / Skarpur frá Kýrholti (IS) – 7,920 (7,97 ; 7,87)
6. Lena Maxheimer / Tvistur frá Kjarna (DE) – 7,900 (8,03 ; 7,77)
7. Árni Björn Pálsson / Kriki frá Krika (IS) – 7,815 (8,00 ; 7,63)
8. Sara Sigurbjörnsdóttir / Dökkvi frá Engjavatni (IS) – 7,770 (7,87 ; 7,67)
9. Hákon Dan Ólafsson / Kolbeinn frá Horni I (AT) – 7,765 (7,83 ; 7,70)
10. Jolly Schrenk / Aris von den Ruhrhöhen (DE) – 7,670 (7,67 ; 7,67)

Stöðulistann í heild sinni má nálgast á vef FEIF.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link