Jón Steinbjörnsson látinn
Jón Steinbjörnsson og Herva von Faxaból
Jón Steinbjörnsson, oftast kallaður Nonni, lést síðastliðinn 22. ágúst eftir veikindi. Nonni var mikill hestamaður og lagði mikið af mörkum til ræktunar og útbreiðslu íslenska hestsins, ekki síst í Þýskalandi. Hann var einn af sendiherrum íslenska hestsins. Hann flutti út mörg hundruð hross og kom að sölu þeirra og vann ötullega að kynningarstarfi íslenska hestsins á erlendri grundu.
Nonni var fæddur og uppalinn á Hafsteinsstöðum í Skagafirði og hafði unnið meira og minna fyrir sér við tamningar og þjálfun hér heima áður en hann flutti til Þýskalands árið 1984. Hann hlaut viðurkenningu frá þýska landssambandinu fyrir lífsstarf sitt í þágu hestamennsku bæði í ræktun og útbreiðslu íslenska hestsins en hann var sá fyrsti til að hljóta þessa viðurkenningu frá sambandinu.
Fyrir tilstilli Nonna komu mörg mikilvæg ræktunar- og keppnishross til Þýskalands og má þar fyrstann nefna Örn frá Akureyri. Jón keppti síðan á syni Arnar, Óðni vom Barghof, í úrslitum á heimsmeistaramótinu 1997. Önnur áhrif mikil hross voru Glæðir frá Hafsteinsstöðum og Stormur von Faxaból sem Jón ræktaði sjálfur. Ræktun hans var kennd við Faxaból og eru 318 hross skráð frá búinu í WorldFeng.
Árið 2015 greindist Nonni með hvítblæði en það kom aldrei í veg fyrir að hann settist í hnakkinn og nyti lífsins með íslenska hestinum.
Vinahópur Nonna vill minnast hans laugardaginn 26. september á Skeiðmeistaramótinu í Zachow. Þetta verður í 20 sinn sem mótið er haldið og hafði Nonni tekið þátt í að minnsta kosti 15 þeirra.
Starfsfólk Eiðfaxa vottar fjölskyldu og vinum Nonna innilegrar samúðar, minning um góðan dreng lifir.
Jón Steinbjörnsson látinn
„Hún er ekkert að gefa mér blítt auga“
Hetja í 9,01 fyrir hæfileika