Kallað eftir atriðum á Vesturlandssýninguna
Fulltrúar hestamannafélaga á Vesturlandi og Hrossaræktarsambands Vesturlands munu efna til Vesturlandssýningar í reiðhöllinni Faxaborg, Borgarnesi, föstudaginn 15. apríl kl. 20.
„Hér áður fyrr voru sýningar haldnar af Vestlendingum í Víðidalnum og í Kópavogi og það má segja að verið sé að endurvekja gamla siði. Á sýningunni munu koma fram vestlenskir gæðingar og dæmi um sýningaratriði eru sýningar hjá börnum og unglingum, ásamt fimmgangs- og fjórgangshestum, skeiði, kynbótahrossum og ræktunarbúum ásamt mörgum fleiri atriðum með góðum gestum. Dagskrá verður auglýst þegar nær dregur.
Þeir sem hafa ábendingar um atriði eða hross, sem eiga erindi á sýninguna geta komið þeim á framfæri við þessa aðila:
Ámundi Sigurðsson, sími: 892-5678, netfang: [email protected]
Baldur Björnsson, sími: 895-4936, netfang: [email protected]
Stefán Ármannsson (v/ kynbótahrossa), sími: 897-5194, netfang: [email protected],“ segir í fréttatilkynningu frá
Undirbúningsnefnd Vesturlandasýningarinnar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH