Kallað eftir keppendum og kynbótahrossum
Úrtaka fyrir Stjörnutölt 2011 verður miðvikudaginn 9. mars kl. 21.15. í Skautahöllinni á Akureyri.
„Úrtakan fer þannig fram að riðið er ÍS-Töltprógramm þ.e einn hringur hægt tölt, einn hringur með hraðamun á langhliðum og einn hringur fegurðartölt.Tvöfalt vægi er á hægu tölti. 3 dómarar dæma. Allt að 10 efstu sæti gefa keppnisrétt á Stjörnutölti 19 mars.
Skráningargjald 2000. kr. sem greiðist á staðnum. Ekki þarf að skrá í tölt úrtökuna, bara mæta á staðinn.
Einnig köllum við eftir efnilegum kynbótahrossum hryssum og stóðhestum til skoðunar. Stefnt er að því að vera með kynningu á efnilegur kynbótahrossum á Stjörnutölti. Þeir sem hafa efnileg kynbótahross og vilja koma með þau á þessa úrtöku hafi samband við Sigfús Helgason í tölvupóst [email protected] þar sem koma fram upplýsingar um hrossið,“ segir í tilkynningu frá framkvæmdarnefnd Stjörnutölts.
Framkvæmdanefnd Stjörnutölts 2011.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH