Kallakvöld Sleipnis
„Kallakvöld“ hestamannafélagsins Sleipnis verður haldið í Þingborg, föstudaginn 6. maí nk. kl. 20, húsið opnar kl. 19.
„Það er skemmtilegt kvöld í vændum, veislustjórinn kemur frá öðru héraði að öllum líkindum og verður ekki af verri endanum. Frábær humarsúpa í forrétt, lambalæri með tilheyrandi meðlæti í aðalrétt, kaffi og það sem ekki má nefna í eftirrétt, allt galdrað fram af snilldarkokknum Eiríki Þór Eiríkssyni sem er sérfræðingur í sunnlensku úrvalshráefni. Happadrætti þar sem fjöldi veglegra vinninga verður í boði. Ræðumaður kvöldsins kemur vestan úr Borgarfirði, Gísli Einarsson hinn þjóðkunni sjónvarpsmaður og væntanlega mun hann bregða sér í líki landans. Hápunktur kvöldsins verður uppboð á folatollum og öðrum eigulegum hlutum. Lifandi tónlist, leynigestur og ýmislegt fleira. Allur afrakstur af kallakvöldinu rennur til Reiðhallar Sleipnis. Taktu frá kvöldið og tryggðu þér miða. Miðar eru seldir á Toytota á Selfossi, miðaverð kr. 5000,“ segir í tilkynningu frá Sleipni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH