Kappreiðarnar halda áfram
Aníta Margrét Aradóttir sem keppti fyrr í ár í Mongol Derby kappreiðinni er ekki að baki dottin og hefur nú fengið þátttökurétt í Fauresmith endurance kappreiðinni. Þetta er 1000 km. reið í Suður-Afríku en Aníta tilkynnti þetta á facebook síðu sinni.
„Og ævintýrið heldur áfram! Ég sótti um í gærkvöldi um 1000km reið í S-Afríku. Fékk svar í morgun að ég sé meira en velkomin að taka þátt! Þetta eru 1000km á 8 dögum en á tömdum vel þjálfuðum hestum. Þykir ein erfiðasta reið í heimi en Mongol Derby þykir samt aðeins erfiðari. Aðeins 8 alþjóðlegir knapar eru valdir og restin eru allt knapar frá S-Afríku þannig þetta slapp. Það er ein hérna sem getur ekki andað af spenning!“
Hægt er að sjá myndband frá Fauresmith endurance hér
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH