KB-Mótaröð 2012

  • 18. nóvember 2011
  • Fréttir
KB-Mótaröð 2012

Mótanefnd Faxa og Skugga kom saman nú á dögunum til að ákveða mótastarf komandi vetrar.  Ákveðið var að halda 3 mót í KB-mótaröðinni næstkomandi vetur, þetta er í þriðja sinn sem þessi mótaröð er haldin, mikil þátttaka hefur verið, hestakostur góður og keppendur komið víða að.

Mótin verða haldin á eftirfarandi dögum í Faxaborg, Borgarnesi:
4. feb.   Fjórgangur
25 feb.  Tölt
18 mars.  Fimmgangur og T2
 

KB mótaröðin er opin íþróttakeppni, bæði liða og einstaklingskeppni. 
Hörð barátta var á milli liðanna í fyrra og heyrst hefur að verið sé að rotta sig saman hér og þar í héraðinu til að búa til sigurlið fyrir næstu mótaröð.  Í fyrra voru það Gæðakokkar sem höfðu betur á lokasprettinum og unnu verðskuldaðan sigur og gaman er að geta þess að það var hestakonan knáa Kolbrún Grétarsdóttir í Snæfelling sem var stigahæst allra keppenda.   

Auk KB mótaraðar er fyrirhugað að halda, gæðingakeppni á beinni braut úti, ísmót þegar færi gefst og sölusýningu í janúar, en allt verður þetta auglýst síðar. 

Hægt er að nálgast allar frekari upplýsingar um fyrirkomulag og reglur KB mótaraðarinnar á heimasíðu skugga, hmfskuggi.is  og eins á facebook síðu KB mótaröðin.

Hlökkum til að sjá ykkur.

Mótanefnd Faxa og Skugga

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link