KEA mótaröðin hefst á fimmtudaginn
KEA mótaröðin hefst í vikunni í Top Reiter höllinni á Akureyri og verður fyrsta mótið kl. 20.00 fimmtudaginn 11.febrúar og keppt verður í tölti.
Skráning er til miðnættis mánudaginn 8. febrúar á netfangið [email protected]. Til að skráning teljist gild þarf að koma fram nafn og kennitala knapa og nafn og is-númer hests. Skráningargjöld 2500 kr. á að greiða inn á reikning 0302 – 26 -15840 kt: 430269-6749 og setja nafn knapa sem skýringu. Síðasti greiðslufrestur er miðvikudagurinn 10.febrúar.
Nú er um að gera og vera með í skemmtilegri mótaröð.
Allir velkomnir.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH