KEA mótaröðin heldur áfram
Skráning er hafin fyrir fimmgangskeppni KEA mótaraðarinnar sem fram fer fimmtudaginn 10. mars.
Skráning skal berast á netfangið [email protected]. Taka þarf fram nafn knapa og kennitölu, nafn hests og ISnúmer, án þessara upplýsinga er skráningin ógild.
Skráningargjaldið er 2.500 kr. fyrir hvern hest sem leggja á inn á rknr. 0302-26-15841 kt. 430269-6749 (a.t.h. þetta er ekki sami reikn. og vanalega er notaður). Greiða þarf skráningargjaldið fyrir hádegi á keppnisdegi.
Skráningu lýkur kl. 21 þriðjudaginn 8. mars, ráslistar verða birtir miðvikudaginn 9. mars
Mótið hefst kl. 19 og er knapafundur kl. 18.15
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing