Kennslusýning reiðkennaraefna
Við vekjum athygli á kennslusýningu reiðkennaraefna Háskólans á Hólum 2016. Að þessu sinni fer sýningin fram í tengslum við Norðlensku hestaveisluna og verður í Léttishöllinni föstudaginn 22. apríl kl. 14:00.
Kennslusýningin er undir forskriftinni „Íslenski hesturinn getur allt, samtal þjálfara og dómara“. En fjallar hún um keppnisgreinarnar og verður sýnt það sem dómarinn horfir á og einstök hugtök útskýrð sem koma fram í leiðaranum.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.