Keppt í íþróttakeppni
Bikarmót Vesturlands fer fram um helgina, 4.júlí, í Æðarodda á Akranesi. Dagskráin er hér fyrir neðan en hún hefst stundvíslega kl. 09:00
Forkeppni:
Fjórgangur (V2) opinn flokkur, barnafl., unglingafl. og ungmennafl.
Fimmgangur (F2) opinn flokkur, ungmennaflokkur
Tölt (T3) barnaflokkur, unglingafl., ungmennafl. og opinn flokkur
Gæðingaskeið
Úrslit:
Fjórgangur V2: opinn flokkur, barnafl., unglingafl. og ungmennafl.
Fimmgangur F2: opinn flokkur, ungmennaflokkur
Tölt barnaflokkur, unglingafl., ungmennafl. og opinn flokkur
100m skeið
Athygli er vakin á því að dagskrá er auglýst með fyrirvara um þátttöku í öllum flokkum. Skráningar: (opið fyrir skráningu frá 27. júni). Farið inn á þessa slóð: www.sportfengur.com og smellið á SKRÁNINGAKERFI vinstra megin á síðunni (fyrir neðan Login hnappinn, athugið að ekki á að logga sig inn á SportFeng Á forsíðu skráningakerfisins er smellt á Mót í valmynd. Áframhaldið rekur sig sjálft, gætið þess bara að fylla í alla stjörnumerkta reiti (einnig félagsaðild þó sjálfgefið félag komi fram), fara svo í Vörukörfu að skráningu lokinni og að klára þar öll skref í ferlinu.
Ganga þarf frá greiðslu skráningagjalda með innlögn á bankareikning en þær upplýsingar koma fram í skráningarferlinu. Athugið að skráningin verður ekki virk fyrr en gjaldkeri hefur merkt við að greiðsla hafi borist. Skráningargjald er kr. 2.500 í allar greinar, nema barnaflokk þar er gjaldið 1.500 kr. Síðasti dagur skráninga er miðvikudagurinn 1.júli á miðnætti og það sama gildir um greiðslu skráningagjalda. Netfang [email protected] fyrir skráningargjöldin. Ef þið hafið einhverjar fyrirspurnir varðandi skráningu þá getið þið haft samband við: Belinda Ottosdóttir i sima 8673978
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH