Keppt í slaktaumatölti og gæðingaskeiði
Það er komið að lokamóti Meistaradeildar Líflands og æskunnar um næstu helgi, því sunnudaginn 3. apríl fer fram keppni í gæðingaskeiði (PP1) og slaktaumatölti (T2). Sem fyrr er það hestamannafélagið Fákur sem býður heim í Víðidalinn í Reykjavík.
Skráning fer fram í gegnum SportFeng og gerum við ráð fyrir að allir skrái sig þar á tilsettum tíma, en skráningarfrestur rennur út á miðnætti föstudagskvöldið 1. apríl. Mótið er nr. IS2022FAK096.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH