Kjarnholt 1 valið hrossaræktarbú Biskupstungna
Hrossaræktarfélag Biskupstungna hélt sína árlegu uppskeruhátíð og sviðaveislu þann 5. febrúar síðastliðinn.
„Gestur kvöldsins var Helgi Eggertsson hrossaræktandi á Kjarri sem hélt áhugavert erindi um ræktun þeirra hjóna og fór síðan yfir víðan völl í fróðlegu og skemmtilegu spjalli,“ segir í tilkynningu.
Veitt voru verðlaun sem hér segir:
Hæst dæmdu hryssur ársins 2014
- 1. Kolbrá frá Kjarnholtum 1, aðaleink: 8,46 – Ræktandi Magnús Einarsson Kjarnholtum 1
- 2. Síbil frá Torfastöðum, aðaleink: 8,34 – Ræktandi Ólafur Einarsson og Drífa Kristjánsdóttir Torfastöðum
- 3. Oddfríður frá Torfastöðum, aðaleink: 8,12 – Ræktandi Ólafur Einarsson og Drífa Kristjánsdóttir Torfastöðum
Hæst dæmdu stóðhestar ársins 2014
- 1. Kolskeggur frá Kjarnholtum 1, aðaleink: 8,69 – Ræktandi Magnús Einarsson Kjarnholtum 1
- 2. Svali frá Tjörn, aðaleink: 8,42 – Ræktandi Guðjón Gunnarsson Tjörn
- 3. Krummi frá Dalsholti, aðaleink: 8,04 – Ræktandi Sigurður Jensson Dalsholti
Afreksverðlaun Hrossaræktarfélags Biskupstungna fékk Magnús Einarsson fyrir Kolskegg frá Kjarnholtum 1, efsta hest í flokki 6 vetra stóðhesta á LM 2014
Hrossaræktunarbú ársins 2014 var valið Kjarnholt 1.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH