Kjarval ekki undan Hervari

  • 6. desember 2010
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Hverfandi lýkur á annarri niðurstöðu

Ekki er öruggt að skráð faðerni Kjarvals frá Sauðárkróki sé rétt, það er að sega að hann sé undan Hervari frá Sauðárkróki. DNA sýni sem tekið var úr Kjarvali 2007 er skráð „í skoðun“. Guðlaugur Antonsson, hrossaræktarráðunautur, segir að þetta þýði einfaldlega að ekki hafi tekist að sýna fram á með óyggjandi hætti að faðernið sé rétt. Eftir því sem sérfræðingar segi geti orðið erfitt að fá 100% niðurstöðu héðan af vegna þess hve langt er um liðið, Hervar sé fallinn og móðir Kjarvals einnig.

Guðlaugur segir að þetta mál sé í raun mjög líkt máli Dags frá Strandarhöfði. Nær öll afkvæmi Baldurs frá Bakka stemmi við föðurinn samkvæmt DNA sýnum og nær öll afkvæmi Dags stemmi við Dag. Sömu sögu sé að segja um þá Hervar og Kjarval og afkvæmi þeirra. Það þýði að yfirgnæfandi líkur séu á því að DNA sýni úr hestunum séu óskemmd og gefi rétta niðurstöðu. Lýkur á annarri niðurstöðu með endurteknum sýnum séu hverfandi, þótt það sé ekki útilokað. Það sé hins vegar eigendanna að taka ákvörðum um hvort farið verði í frekari rannsóknir og sýnatökur.

Samkvæmt vinnureglum sem settar hafa verið verða ættartengsl í WorldFeng sem ekki standast DNA skoðun strokuð út. Bæði Dagur og Kjarval munu því missa feður sína á næstunnni. Alla vega meinta feður í WorldFeng.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link