Knapaklúbbur Faxabóls
Reiðskólinn Faxaból ætlar nú með stofnun knapaklúbbs Faxabóls að koma til móts við þann hóp barna og unglinga sem langar að stunda hestamennsku eins og hinn almenni reiðmaður yfir vetrartímann.
Verður klúbburinn starfræktur í hesthúsinu að Faxabóli 11 í Víðidal þar sem hver nemandi fær sinn hest yfir veturinn ásamt öllum búnaði, hver knapi fær möppu merkta sér þar sem safnað verður saman fræðsluefni jafnt og þétt yfir veturinn um leið og starfsfólk Faxabóls verður á staðnum til leiðbeiningar og kennslu.
Getum aðeins tekið við takmörkuðum fjölda nemenda en þetta er tilvalið tækifæri fyrir vini eða vinkonur til að stunda hestamennskuna saman eða kynnast öðrum hressum og kátum hestakrökkum.
Allar nánari upplýsingar gefur Þóra í síma 822-2225.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson