Knapamerkjanámskeið í ágúst

  • 10. ágúst 2011
  • Fréttir
Knapamerkjanámskeið í ágúst

Fákur mun bjóða upp á námskeið í knapamerkjum eitt og tvö í lok ágúst að er fram kemur í tilkynningu:

„Vinsældir knapamerkjanámskeiðanna hafa verið gífurlegar undanfarin ár og hafa félagsmenn í Fáki verið mjög duglegir að mennta sig í reiðmennskunni.

Nú í lok ágúst verður haldið námskeið í knapamerki eitt og tvö í Reiðhöllinni í Víðidal ef næg þátttaka næst. Námskeiðin verða 3-4 sinnum í viku og því mun hraðari kennsla en venjulega. Athugið að námskeiðið er einungis hugsað fyrir fullorðna, þ.e. 18 ára og eldri.

Reiðkennari verður Sif Jónsdóttir sem starfað hefur í Fáki síðustu ár.

Þetta er tilvalið tækifæri til að taka hestinn inn og skella sér á námskeið í nokkrar vikur. Sennilega verður ekki boðið aftur upp á knapamerki eitt fyrr en næsta vor (apríl/maí) svo það er um að gera að nýta tækifærið og klára þessi námskeið með stæl!

Þeir sem hafa áhuga á að skrá sig sendi tölvupóst á [email protected] fyrir 20. ágúst. 

Þegar fjöldi þátttakenda er ljós munu verð og nánari upplýsingar liggja fyrir. Það er því um að gera fyrir þá sem hafa áhuga á að skella sér, að skrá sig sem fyrst.“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link