Knapaviðtöl á lokamóti Meistaradeildar KS
Lokakvöld Meistaradeildar KS fór fram föstudagskvöldið 17. apríl þegar keppt var í tölti og flugskeiði. Góð tilþrif sáust í báðum greinum og meðal þess setti Agnar Þór Magnússon hallarmet í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki á Kvisti frá Kommu þegar þeir fóru á 4,52 sekúndum. Í töltkeppninni var það Thelma Dögg Tómasdóttir og Bóel frá Húsavík sem fóru með sigur af hólmi.
Þegar að öllum greinum var lokið fór það svo að Þórarinn Eymundsson og lið Hrímnis/Hestkletts voru krýndir heildarsigurvegarar deildarinnar.
Það var okkur hjá Eiðfaxa heiður að sýna frá öllum mótum deildarinnar. Í deildinni keppa knapar á öllum aldri sem koma víðs vegar að, Magnús Benediktsson var á staðnum á lokamótinu og tók knapanna tali að lokinni forkeppni í tölti þar sem rætt var um frammistöðu kvöldsins, vorið framundan, Landsmót og ýmislegt fleira. Úr varð skemmtilegt og fróðlegt spjall og er hægt að horfa á þessi viðtöl hér fyrir neðan.
Knapaviðtöl á lokamóti Meistaradeildar KS
„Hún bjó yfir gríðarlegri orku og getu“
Enn þarf að fresta skráningum á kynbótasýningar
Um 700 gestir á Æskan og hesturinn og frumkvöðlar heiðraðir
Skráning hafin á opið íþróttamót Spretts