Köflóttur árangur
Ekkert hross fætt í Noregi er á meðal tíu efstu hrossa í sínum andursflokki nú í ár. Áberandi er hve mögur uppskera er í elsta flokki hryssna og stóðhesta, en hæst dæmda hryssa Noregs í elsta flokki er Tindra frá Storebø með 8,09 í aðaleinkunn. Ræktunin hefur þó verið að eflast í Noregi á undanförnum árum.
Í Noregi er talsverð ræktun íslenska hestsins, en þar í landi voru tæplega 300 folöld skráð í fyrra.
Hæst dæmda hross ársins í Noregi er stóðhesturinn Litli-Dagur frá Teland með 8,40 í aðaleinkunn. Hann er sonur Starrasonarins Hrafns frá Brimilsvöllum. Hæst dæmda hryssa Noregs er hins vegar Ísold frá Sigersberg með 8,29 í aðaleinkunn. Ísold er dóttir Kiljans frá Blesastöðum.
Hæstu hross Noregs í hverjum flokki
NO2010104091 Bjartmar frá Nedre Sveen 8,12
NO2010204234 Frábær frá Midtlund 8,04
NO2009114206 Litli-Gneisti frá Moene 8,02
NO2009210221 Carmen frá Vindal 8,27
NO2008110314 Litli-Dagur frá Teland 8,40
NO2008204455 Ísold frá Sigersberg 8,29
NO2007115422 Núpur frá Stall Kjersem 7,95
NO2006208071 Tindra frá Storebø 8,09
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing