Konfektmolar á Vindheimamelum
Þóra frá Prestsbæ braut „níu múrinn“ þegar hún hlaut 9,0 slétta fyrir hæfileika á kynbótasýningu á Vindheimamelum sem nú stendur yfir. Hún er með 9,0, fyrir tölt, og 9,5 fyrir skeið, brokk og vilja. Hún mun að öllum líkindum hækka einkunnina í yfirliti, þar sem hún hlaut ekki einkunn fyrir hægt stökk í fordómi og 8,0 fyrir eiginleikann í heildina. Þóra er undan Þoku frá Hólum og Orra frá Þúfu, knapi Þórarinn Eymundsson.
Fleiri konfektmolar hafa fallið á brautina á Vindheimamelum. Seiður frá Flugumýri, sem setti heimsmet í aðaleinkunn í 4 vetra flokki 2008, er kominn með rosa aðaleinkunn, 8,69, og þar með kominn í hóp stórlaxa í röðum stóðhesta. Hann er með 9,0 fyrir framhluta, samræmi, prúðleika, brokk, skeið, stökk og vilja. Seiður er undan Kletti frá Hvammi og Sif frá Flugumýri. Knapi Mette Mannseth.
Mette situr flest topphrossin á Vindheimamelum, þar á meðal stóðhest sinn Hátt frá Þúfum, sem er kominn í 8,64 í aðaleinkunn, og Þrift frá Hólum sem er í 8,60. Þrift er mikið úrval að fegurð, er með 9,5 fyrir framhluta og samræmi, og 9,0 fyrir fegurð í reið. Þrift er undan Þrennu frá Hólum og Adam frá Ásmundarstöðum. Hún er 7 vetra, var sýnd 4 vetra á LM2008 og hlaut þá 8,25 í aðaleinkunn.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH