Konráð og Kastor fljótastir í gegnum höllina
Mynd frá verðlaunaafhendingu í flugskeiði árið 2025. Ljósmynd: Caroliin Giese
Keppni í flugskeiði í Meistaradeild Líflands gekk hratt og vel fyrir sig og góðir tímar náðust. Konráð Valur Sveinsson og Kastor frá Garðshorni á Þelamörk bættu þar enn einni rós í hnappagatið í skeiðgreinum og unnu á tímanum 5,66 sekúndum.
Þá voru yfirburði liðs Top Reiter/Sumarliðabæjar ótvíræðir í þessari grein en fjórir knapar liðsins sem þátt tóku röðuðu sér í efstu fjögur sætin. Það er áður nefndur Konráð Valur á Kastor efstur, önnur varð Eyrún Ýr Pálsdóttir á Friðsemd frá Kópavog á 5,79 sekúndum, þriðji varð Árni Björn Pálsson á Ögra frá Horni á tímanum 5,86 og í því fjórða Teitur Árnason á sama tíma. Eyrún Ýr keppti sem uppboðsknapi og taldi því ekki til stiga. Liðabikarinn varð því þeirra í flugskeiði.
Gaman er að segja frá því að þessir þrír efstu urðu einnig í sömu sætum í þessari grein í fyrra.
Nú styttist í að komi í ljós hverjir sigra í heildarstigakeppninni.
Niðurstaða í flugskeiði
| Flugskeið 100m P2 | |||
| Fullorðinsflokkur – Meistaraflokkur | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Tími |
| 1 | Konráð Valur Sveinsson | Kastor frá Garðshorni á Þelamörk | 5,66 |
| 2 | Eyrún Ýr Pálsdóttir | Friðsemd frá Kópavogi | 5,79 |
| 3 | Árni Björn Pálsson | Ögri frá Horni I | 5,86 |
| 4 | Teitur Árnason | Væta frá Leirulæk | 5,86 |
| 5 | Sigurður Sigurðarson | Tromma frá Skúfslæk | 5,87 |
| 6-7 | Hans Þór Hilmarsson | Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði | 5,97 |
| 6-7 | Gústaf Ásgeir Hinriksson | Piltur frá Sturlureykjum 2 | 5,97 |
| 8 | Þorgeir Ólafsson | Herborg frá Felli | 5,99 |
| 9 | Jóhanna Margrét Snorradóttir | Bríet frá Austurkoti | 6,00 |
| 10 | Benjamín Sandur Ingólfsson | Gullborg frá Læk | 6,07 |
| 11 | Helga Una Björnsdóttir | Salka frá Fákshólum | 6,11 |
| 12 | Ásmundur Ernir Snorrason | Númi frá Árbæjarhjáleigu II | 6,12 |
| 13-14 | Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir | Hörpurós frá Helgatúni | 6,13 |
| 13-14 | Jakob Svavar Sigurðsson | Jarl frá Kílhrauni | 6,13 |
| 15 | Jón Ársæll Bergmann | Stirnir frá Laugavöllum | 6,14 |
| 16-17 | Hinrik Bragason | Klókur frá Dallandi | 6,17 |
| 16-17 | Sigurður Vignir Matthíasson | Gnúpur frá Dallandi | 6,17 |
| 18 | Hanne Oustad Smidesang | Vinátta frá Árgerði | 6,26 |
| 19 | Flosi Ólafsson | Orka frá Breiðabólsstað | 6,34 |
| 20 | Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal | Alviðra frá Kagaðarhóli | 6,44 |
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“
Agnar og Kvistur á nýju hallarmeti
„Hún bjó yfir gríðarlegri orku og getu“
Íslandsmót í hestaíþróttum 2026 verður hjá Sörla í Hafnarfirði