Konsert með flest sýnd afkvæmi á árinu

  • 5. október 2021
  • Fréttir

Gandi frá Efri-Rauðalæk er hæst dæmd afkvæmi Konsert frá Hofi en Konsert á flest sýnd afkvæmi á árinu.

Kynbótaárið 2021

Eiðfaxi heldur áfram að gera upp kynbótaárið 2021. Þegar litið er til fjölda sýndra afkvæma í fullnaðardóm er Konsert frá Hofi þar fremstur í flokki með 51 sýnt hross á árinu, þar af 26 stóðhestar.

Hæst dæmda afkvæmi Konserts er Gandi frá Rauðalæk. Gandi var sýndur á vorsýningu á Gaddstaðaflötum og hlaut þar 8,79 fyrir sköpulag, 8,45 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,57. Hann er sex vetra gamall og hlaut næst hæstu aðaleinkunn ársins í þeim aldursflokki. Móðir Ganda er Garún frá Árbæ sem er undan Aroni frá Strandarhöfði og Glás frá Votmúla 1. Ræktandi og eigandi Ganda er Elisabet Norderup Michelson

Næstir á eftir Konserti eru þeir Skýr frá Skálakoti og Spuni frá Vesturkoti báðir með 37 sýnd afkvæmi á árinu.

Listi af þeim stóðhestum sem eiga fleiri en 10 sýnd afkvæmi á árinu í fullnaðardóm.

Konsert frá Hofi 51
Spuni frá Vesturkoti 37
Skýr frá Skálakoti 37
Stáli frá Kjarri 35
Ölnir frá Akranesi 34
Ómur frá Kvistum 33
Hrannar frá Flugumýri II 29
Arion frá Eystra-Fróðholti 29
Álfur frá Selfossi 27
Hnokki frá Fellskoti 23
Sjóður frá Kirkjubæ 20
Loki frá Selfossi 18
Óskasteinn frá Íbishóli 16
Trymbill frá Stóra-Ási 16
Álfasteinn frá Selfossi 15
Herkúles frá Ragnheiðarstöðum 14
Kiljan frá Steinnesi 14
Jarl frá Árbæjarhjáleigu 13
Viti frá Kagaðarhóli 13
Hringur frá Gunnarsstöðum 12
Draupnir frá Stuðlum 11
Eldur frá Torfunesi 11
Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum 11
Hreyfill frá Vorsabæ 11
Skaginn frá Skipaskaga 10
Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum 10
Hróður frá Refsstöðum 10
Arður frá Brautarholti 10
Krákur frá Blesastöðum 1a 10

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link