Konsert og Barði mæta á ísinn
Kynntir eru tveir stóðhestar sem mæta munu á Ístölt – þeir allra sterkustu og fá áhorfendur að horfa á þá sýna kosti sína á svellinu.
Konsert frá Korpu stóð efstur í flokki sex vetra stóðhesta á Landsmótinu á Vindheimamelum síðasta sumar. Hann er fæddur 2005, undan heiðursverðlaunahestinum Sæ frá Bakkakoti og Hátíð frá Hellu. Konsert er vel skapaður hestur, með 8,33 fyrir sköpulag og nóg er af hæfileikunum því hann er með þrjár níur fyrir kosti, fyrir skeið, vilja og geðslag og fegurð í reið og það gerir 8,68 fyrir hæfileika. Aðaleinkunnin er 8,54. Gaman verður að sjá þennan snilling á Ístölti, setinn af John Kristni Sigurjónssyni.
Barði frá Laugarbökkum varð sjötti í flokki 7v og eldri stóðhesta á Landsmótinu síðasta sumar. Hann er fæddur 2004, undan Þokka frá Kýrholti og Birtu frá Hvolsvelli. Barði er vel gerður hestur með fimm níur í kynbótadómi, fyrir bak og lend, tölt, stökk, fegurð í reið og hægt tölt. Fyrir sköpulag hefur hann hlotið 8,28 og fyrir kosti 8,66, aðaleinkunn 8,51. Sannarlega spennandi hestur sem sýndur verður af Janusi Eiríkssyni.
Landsliðsnefnd LH ber hitann og þungan af skipulagningu þessa viðburðar sem er styrktarverkefni fyrir landslið Íslands í hestaíþróttum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH