Krákur kvittar undir

  • 26. maí 2011
  • Fréttir
Sjö afkvæmi í fyrstu verðlaun

Kröftug innkoma Kráks frá Blesastöðum með fyrstu afkvæmi í dóm fyrir tveimur árum virðist ekki hafa verið nein tilviljun. Þá fengu þrjú afkvæmi góð fyrstu verðlaun.

Nú hafa fjögur til viðbótar bæst í hópinn. Gott tölt er það sem einkennir afkvæmi Kráks, en tvö hæst dæmdu afkvæmin eru þó fljúgandi alhliða gæðingar, þau Mjölnir og Ronja frá Hlemmiskeiði 3.

Á kynbótasýningunni á Sörlastöðum bætti Krákur skrautfjöðrum í hatt sinn. Þar á meðal var fjögra vetra dóttir hans Úlfhildur frá Blesastöðum 1a, undan Kötu frá Haga, Keilisdóttur frá Miðsitju og Fjólu frá Haga, Viðarsdóttur frá Viðvík. Úlfhildur hlaut 9,0 fyrir tölt, stökk og vilja, og 8,05 fyrir kosti. Fyrir sköpulag er hún með 8,21, þar af 9,0 fyrir framhluta og samræmi.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link