Krókur frá Ytra-Dalsgerði er nú til afnota í sæðingum
Krókur frá Ytra-Dalsgerði er nú til afnota í sæðingum á Dýrfinnustöðum í Skagafirði auk Sandhólaferju
Sæðingar með sæði úr Króki frá Ytra-Dalsgerði hafa gengið vel á Sandhólaferju; sæðisgæðin eru góð og lifun fín. Auk þess var gerð tilraun með að flytja sæði úr honum norður á sæðingastöðina á Dýrfinnustöðum í Skagafirði og voru gæði sæðisins góð eftir flutninginn og áframhaldandi lifun eftir að norður var komið fín og er nú boðið upp á að sæða við Króki þar auk á Sandhólaferju. Allar nánari upplýsingar um það veitir Ingólfur Helgason bóndi á Dýrfinnustöðum í síma 8973228.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH