Krókur og Logadís efst

  • 19. maí 2012
  • Fréttir
Krókur og Logadís efst

Fyrri yfirlitssýningu kynbótahrossa í gær á Brávöllum á Selfossi. Efstur stóðhesta var Krókur frá Ytra-Dalsgerði og jafnframt var hann hæsta dæmda hrossið á sýningunni fyrir sköpulag. Krókur hlaut 8,52 í aðaleinkunn sem skiptist: 8,43 fyrir kosti og 8,66 fyrir sköpulag. Krókur er 6 vetra undan Gára frá Auðsholtshjáleigu. Efsta hryssan á sýningunn var Logadís frá Syðra Garðshorni. Hún hlaut 8,36 í aðaleinkunn; 8,28 fyrir kosti og 8,48 fyrir sköpulag.

Hápunktur sýningarinn var  þó sennilega sýningin á Þrumufleyg frá Álfhólum. John Kristni Sigurjónssyni sýndi  Þrumufleyg lista vel hann fékk  9,5 fyrir tölt, brokk og vilja og geðslag.

130 hross hlutu fullnaðardóm þar af náðu 55 hross fyrstu verðlaunum og 28 komust inn á Landsmót .Það  mun verða spennandi að fylgjast með hverjir bætast við sem Landsmótsfarana næstu vikurnar.  Kynbótasýningin á Selfossi mun halda áfram í næstu viku þá mun einnig hefjast kynbótasýningin á Melgerðismelum og í vikunni þar á eftir á Gaddstaðaflötum á Hellu. Þannig að nóg verður að gera við að fylgjast með kynbótahrossunum næstu vikurnar.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link