Kvefpestin – opin fræðslufundur
Mynd: www.hestheimar.is
Hestamannafélögin á höfuðborgarsvæðinu bjóða upp á opinn fræðslufund um kvefpestina sem geisar í hrossastofninum þessa dagana. Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma mun halda erindi og svara fyrirspurnum um veikina. Vilhjálmur Svanson, dýralæknir á Keldum mun sennilega koma og fræða okkur um greiningar ofl. á pestinni.
Staður: Reiðhöllin í Víðidal
Tími: Fimmtudaginn 20. maí kl. 20.30
Frítt inn og allir velkomnir – veitingar seldar á staðnum.
Andvari, Fákur, Gustur, Hörður, Sóti og Sörli
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH