Kvöldstund með margföldum meisturum
Rúna Einarsdóttir Zingsheim mun miðla af reynslu sinni í félagsheimili Harðar 17. desember, ásamt Jóhanni Skúlasyni.
Félag tamningamanna stendur fyrir áhugaverðum viðburði laugardaginn 17. desember kl. 18.00 í félagsheimili Harðar í Mosfellsbæ. Þar munu þau Jóhann R. Skúlason og Rúna Einarsdóttir-Zingsheim halda fyrirlestur og veita gestum innsýn í þjálfunaraðferðir sínar. Þessa knapa þarf varla að kynna, en þau hafa bæði átt fast sæti í íslenska landsliðinu árum saman og unnið til ótal heimsmeistaratitla.
Hér er um að ræða einstakt tækifæri til að skyggnast inn í reynslubanka þessara mögnuðu reiðmanna. Aðgangseyrir er kr. 1.500, en skuldlausir félagar í FT fá frítt inn. Allir velkomnir!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH