Kynbótadómar á Rangárbökkum hefjast á morgun
Safír frá Laugardælum í byggingardómi á Rangárbökkum í vor.
Miðsumarssýning kynbótahrossa hefst á morgun, mánudaginn 20. júlí á Rangárbökkum við Hellu.
Alls eru 78 hross skráð til dóms og verður dæmt á fram á mánudag og yfirlitssýning fer fram á fimmtudaginn. Dómarar á sýningunni eru Sveinn Ragnarsson, Guðbjörn Tryggvason og Heiðrún Sigurðardóttir.
Er þessi sýning eina miðsumarssýning ársins en önnur sem fara átti fram á Akureyri var felld niður þar sem ekki náðist næg þátttaka. Þrjár síðsumarssýningar eru þá fyrirhugaðar með tveimur sýningum á Rangárbökkum og einni á Hólum í Hjaltadal.
Hollaröð liggur fyrir á vefsíðu RML sem einnig má nálgast með því að smella hér. Sýnt er frá reiðdómum í beinni útsendingu á EiðfaxaTV.
Kynbótadómar á Rangárbökkum hefjast á morgun
Hæst dæmdi hestur í heimi
Kynbótahross á Landsmóti
Norðmenn senda vaska sveit á Norðurlandamót
Íslandsmót barna og unglinga hefst í næstu viku