Kynbótasýningar vorið 2026: Skráning hefst 28. apríl
Skráning á kynbótasýningar vorsins hefst þriðjudaginn 28. apríl. Skráning fer fram í gegnum heimasíðu RML eða á forsíðu WorldFengs. Mikilvægt er að ganga frá skráningu og greiðslu tímanlega, en frestur rennur út á miðnætti auglýstra skráningardaga. Ef sýningar fyllast lokast sjálfkrafa fyrir frekari skráningar.
Frá þessu og fleiru segir í grein sem birtist á heimasíðu RML, skrifuð af Höllu Eygló Sveinsdóttur. Hér að neðan má lesa það helst sem þar kemur fram.
Breytingar á sköpulagsdómum
Ákveðnar breytingar hafa verið gerðar á tilhögun sköulagsdóma til að auka sveigjanleika:
- Valkvæður sköpulagsdómur: Hross sem eru 6 vetra og eldri, og hafa áður hlotið sköpulagsdóm 5 vetra eða eldri, þurfa ekki að mæta aftur í sköpulagsdóm. Eigendur geta látið fyrri dóm standa og mætt eingöngu í hæfileikadóm. Nýjasti sköpulagsdómur er sá sem gildir.
- Sveigjanleiki milli sýninga: Ekki er lengur krafa um að sköpulags- og hæfileikadómur fari fram á sömu sýningu. Hross getur t.d. farið í sköpulagsdóm að vori og hæfileikadóm síðar á árinu til að hljóta fullnaðardóm.
- Aldurstakmörk: Öll 4 og 5 vetra hross verða þó alltaf að fara í sköpulagsdóm áður en þau fara í hæfileikadóm.
Sýningargjöld og endurgreiðslur
- Fullnaðardómur: 46.100 kr.
- Sköpulags- eða hæfileikadómur: 35.100 kr.
- Greiðsla þarf að eiga sér stað samhliða skráningu. Endurgreiðslur vegna forfalla eru aðeins í boði ef tilkynnt er um þau fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir upphaf sýningarviku.
Mikilvæg atriði fyrir skráningu
RML minnir eigendur á að ganga úr skugga um að öll formsatriði séu í lagi áður en skráð er:
- DNA-greining: Öll hross (hryssur, geldingar og stóðhestar) verða að vera með staðfesta DNA-greiningu í WorldFeng.
- Spattmyndir: Úr Stóðhestum 5 vetra og eldri þarf að liggja fyrir að búið sé að taka spattmyndatöku auk blóðsýnis.
- Örmerking: Hross verða að vera örmerkt. Ef örmerki finnst ekki á sýningarstað þarf að merkja og taka DNA-sýni á kostnað eiganda.
RML áskilur sér rétt til að sameina sýningar eða fækka dögum ef lágmarksfjölda (30 hross) er ekki náð.
Ný stjórn deildar hrossabænda innan BÍ
Stefnir í skemmtilega Stóðhestaveislu!
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“
Rósa sigurvegari í gæðingaskeiði Samskipadeildar
Þórdís Inga og Þorvaldur Logi unnu sína greinina hvor
Elva Rún vann ungmennadeildina