Kynbótasýningarárið í Danmörku

  • 6. október 2021
  • Fréttir

Hæmir fra Hyldsbæk Ljósmynd/DI - avl og kåringer

Yfirlit yfir kynbótasýningar ársins

Í Danmörku voru haldnar fjórar kynbótasýningar og ein sýning einungis með sköpulagsdómum. Fullnaðardómar voru 122 talsins. Søren Madsen var með flestar sýningar á árinu eða 40 talsins og á eftir honum er Agnar Snorri Stefánsson með 20 sýningar.

Hæmir fra Hyldsbæk hlaut hæsta dóm ársins í Danmörku, sýndur af Agnari Snorra. Hæmir hlaut 8,76 fyrir sköpulag, sem er einnig hæsta sköpulags einkunn ársins í Danmörku, 8,60 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,66. Hann hlaut m.a. 9,5 fyrir háls, herðar og bóga og 9,0 fyrir tölt, greitt stökk, samstarfsvilja, fegurð í reið, fet, samræmi og prúðleika. Hæmir er 6 vetra undan Grím frá Efsta-Seli og Heilladís frá Grímsstöðum sem er undan Orra frá Þúfu í Landeyjum og Sædísi frá Grímsstöðum. Blær er ræktaður af Susanne Fibiger og er í hennar eigu ásamt Stald Gavnholt (Agnar Snorri).

8,60 var hæsta einkunn sem var gefin fyrir hæfileika í ár í Danmörku en ásamt Hæmi hlaut Evert fra Slippen þessa einkunn. Evert var sýndur af Jóhanni Rúnari Skúlasyni en hann er jafnframt eigandi og ræktandi. Evert hlaut m.a. 10 fyrir tölt og 9,5 fyrir samstarfsvilja, fegurð í reið og hægt tölt. Hann hlaut 9,25 fyrir hæfileika án skeiðs. Evert hlaut fyrir sköpulag 8,59 og í aðaleinkunn 8,60. Evert er undan Hnokka frá Fellskoti og Líf fra Slippen en hún er undan Garra frá Reykjavík og Andrá frá Skarði.

María frá Rauðalæk er hæst dæmda hryssa ársins í Danmörku, sýnd af Søren Madsen. María er 5 vetra og hlaut í aðaleinkunn 8,15, 8,16 fyrir sköpulag og 8,15 fyrir hæfileika. Hún er undan Óm frá Kvistum og Mæru frá Þúfu í Landeyjum sem er undan Orra frá Þúfu í Landeyjum og Iðu frá Þúfu í Landeyjum. Ræktandi og eigandi Maríu er Stutteri Bjarup ehf.

Fyrir utan tíuna sem Evert hlaut fyrir tölt voru þrjú hross sem hlutu 10 fyrir prúðleika Hrauney frá Bakkeholm, Lakkrís fra Skadhauge og Atli vom Ibikonhof. Það voru einu 10 sem gefnar voru í Danmörku í ár.

 

10 hæst dæmdu stóðhestar ársins í Danmörku

Fæðingarnúmer Nafn Uppruni Sýnandi SE HE AE
DK2015100055 Hæmir Hyldsbæk Agnar Snorri Stefansson 8.76 8.60 8.66
DK2015100565 Evert Slippen Jóhann Rúnar Skúlason 8.59 8.60 8.60
IS2015184162 Trommari Skálakoti Agnar Snorri Stefansson 8.41 8.58 8.53
IS2016156108 Tengill Hofi Søren Madsen 8.35 8.43 8.40
DK2016100618 Nökkvi Bendstrup Søren Madsen 8.26 8.34 8.31
DK2014100357 Barón Limfjorden Agnar Snorri Stefansson 8.40 8.20 8.27
DK2017100389 Hraði Skovhuset Søren Madsen 8.21 8.31 8.27
DK2014100550 Morgan Slippen Søren Madsen 8.32 8.17 8.22
DK2015100207 Leó Nøddegården Rasmus Møller Jensen 8.27 8.18 8.22
DK2015100160 Eysteinn Elmehøj Agnar Snorri Stefansson 8.17 8.22 8.20

 

10 hæst dæmdu hryssur ársins í Danmörku

Fæðingarnúmer Nafn Uppruni Sýnandi SE HE AE
IS2016281911 María Rauðalæk Søren Madsen 8.16 8.15 8.15
IS2014255475 Bára Þóreyjarnúpi Søren Madsen 8.03 8.16 8.12
DK2016200007 Aþena Elmehøj Søren Madsen 8.23 8.02 8.10
DK2016200207 Hylling Bakki Søren Madsen 8.34 7.95 8.09
DK2014200384 Sæta Teland Agnar Snorri Stefansson 8.23 7.92 8.03
DK2014200588 Klassík Teland Steffi Svendsen 8.00 8.05 8.03
DK2016200103 Anganóra Marianesminde Rasmus Møller Jensen 8.35 7.85 8.03
IS2013256285 Snælda Steinnesi Sigurður Óli Kristinsson 8.02 8.03 8.03
DK2015200602 Sunneva Højgaarden Rikke Sejlund Lorentzen 8.11 7.94 8.00
IS2016288029 Eldrún Háholti Søren Madsen 8.14 7.93 8.00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link