Kynbótasýningum ársins 2021 lokið
Katla frá Hemlu II hlaut hæstu aðaleinkunn ársins hér á landi 8,77. Á myndinni í sýningu á Landsmóti 2018 knapi: Árni Björn Pálsson
Kynbótasýningum hér á landi lauk í gær þegar yfirlitssýning fór fram á Gaddstaðaflötum við Hellu. Alls voru 1117 fullnaðardómar felldir í ár á 17 sýningum. Sé miðað við tvö síðustu ár að þá er þetta fjölgun frá árinu 2019 en fækkun frá því í fyrra árið 2020, árið 2019 voru 1031 fullnaðardómar felldir og árið 2020 voru þeir 1222.
Af þessum fullnaðardómum voru 315 stóðhestar og 794 hryssur, sýndir geldingar voru 8 talsins.
Þeir kynbótadómarar sem sinntu dómstörfum hér á landi voru 19 talsins. Hér fyrir neðan má sjá hverjir þeir voru raðað eftir fjölda fullnaðardóma.
| Dómari | 2021 ▴ |
| Þorvaldur Kristjánsson | 505 |
| Elsa Albertsdóttir | 345 |
| Elisabeth Trost | 312 |
| Heiðrún Sigurðardóttir | 297 |
| Valberg Sigfússon | 291 |
| Eyþór Einarsson | 288 |
| Halla Eygló Sveinsdóttir | 230 |
| Elisabeth Jansen | 226 |
| Guðlaugur V Antonsson | 215 |
| Óðinn Örn Jóhannsson | 148 |
| Gísli Guðjónsson | 134 |
| Jón Vilmundarson | 132 |
| Sveinn Ragnarsson | 118 |
| Per Kolnes | 118 |
| Steinunn Anna Halldórsdóttir | 113 |
| Víkingur Þór Gunnarsson | 111 |
| Friðrik Már Sigurðsson | 111 |
| Einar Ásgeirsson | 105 |
| Arnar Bjarki Sigurðarson | 78 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH