Kynna nýja keppnisgrein á afmælishátíð FT

  • 25. janúar 2011
  • Fréttir
Eyjólfur kominn í gírinn

Vinnuhópur í FT vinnur nú að útfærslu nýrrar keppnisgreinar, sem verður kynnt á afmælishátíð félagsins í Reiðhöllinni í Víðidal 19. febrúar. Í hópnum eru tamningameistarar FT: Eyjólfur Ísólfsson, sem stýrir verkefninu, Benedikt Líndal, Sigurbjörn Bárðarson, Reynir Aðalsteinsson og Þórarinn Eymundsson. Einnig eru í hópnum Atli Guðmundsson, Trausti Þór Guðmundsson og Sigrún Ólafsdóttir, formaður FT.

Hin nýja keppnisgrein er náskyld gæðingafimi, eins og við þekkjum hana úr Meistaradeild í hestaíþróttum. Sambland af gangtegundum, fimiæfingum og fjálsum æfingum. Margar hugmyndir eru upp á borðinu um nýjar útfærslur. Til dæmis er rætt um nokkur mismunandi erfiðleikastig, til að sem flestir geti þreytt keppnisgreinina á sínum forsendum, miðað við reynslu og hæfni.

Rétt er að rifja upp að það var Eyjólfur Ísólfsson sem hannaði gæðingafimina á sínum tíma. Samkvæmt heimildum Hestablaðsins er karlinn kominn í gírinn og fer mikinn í nýjum hugmyndum. Fyrst var keppt í gæðingafimi á FM1993 á Vindheimamelum og var það Einar Öder Magnússon sem sigraði þar með glæsibrag á stóðhestinum Oddi frá Selfoss. Oddur er ennþá á lífi, en ekki fylgir sögunni hvort að Öderinn verði með „comeback“ á Oddi á afmælishátíðinni.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link