Kynningafundur og afhending knapamerkjaskírteina
Æskulýðsdeild og Fræðsludeild Fáks hafa staðið fyrir öflugu námskeiðahaldi á veturna. Nú sem endra nær verður boðið upp á mikinn fjölda af námskeiðum af öllum stærðum og gerðum og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Kynningafundur verður haldinn miðvikudaginn 25. nóvember í félagsheimili Fáks og hefst hann kl. 20:00. Skráning á námskeiðin verður svo auglýst síðar.
Einnig verður útskrift vegna knapamerkjanámskeiðanna sl. vetur og allir þeir sem voru á þeim námskeiðum, bæði fullorðnir og unglingar, eiga að mæta á fundinn.
Ásamt sýnikennslu og fræðslufundum verður m.a. boðið upp á eftirfarandi námskeið í vetur;
- Knapamerkjanámskeið, bæði fyrir unglinga og fullorðna
- Almenn námskeið
- Einkatímar
- Keppnisnámskeið
- Byrjendanámskeið
- Járningarnámskeið
- Nuddnámskeið (fyrir hrossin að sjálfsögðu)
- Monty Roberts námskeið ofl.
Hlökkum til að sjá ykkur
Fræðsludeild og æskulýðsdeild Fáks
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH