Landsliðið tekur á sig mynd
Að loknum öllum úrslitum á Gullmótinu kynntu landsliðsstjórarnir Einar Öder Magnússon og Hafliði Halldórsson, þá knapa sem á Gullmótinu unnu sér þátttökurétt í landsliðinu á HM í Austurríki síðar í sumar.
Þeir knapar sem hafa unnið sér þátttökurétt á HM eru eftirtaldir:
Knapi nr. Fyrri Seinni Meðaltal
1 Árni Björn Pálsson / Aris frá Akureyri 7,07 7,20 7,14
2 Hulda Gústafsdóttir / Kjuði frá Kirkjuferjuhjáleigu 7,50 7,47 7,49
3 Viðar Ingólfsson / Tumi frá Stóra-Hofi 8,13 8,37 8,25
4 Eyjólfur Þorsteinsson / Ósk frá Þingnesi 8,00 8,63 8,32
8 Hekla Katharína Kristinsdóttir / Gautrekur frá Torfastöðum 7,43 7,50 7,47
9 Teitur Árnason, Gammur frá Skíðbakka III 7,71 7,58 7,65
Auk þeirra eiga þrír titilverjendur sæti í landsliðinu, þau Jóhann Skúlason heimsmeistari í tölti, Bergþór Eggertsson heimsmeistara í 250 m skeiði og Rúna Einarsdóttir heimsmeistari samanlagður sigurvegari í fimmgangsgreinum á HM 2009.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH