Landsliðshópur Íslands í hestaíþróttum 2024

Eftir frábæran árangu á liðnu ári þar sem Heimsmeistaramótið í Hollandi var hápunkturinn er ljóst að Ísland á tækifæri á að senda stóran hóp á næsta HM sem haldið verður í Sviss árið 2025 og undirbúningur er þegar farinn á fullan skrið.
Verkefni ársins eru mikil en hápunkturinn verður Norðurlandamótið í Herning í Danmörku 8-11 ágúst næstkomandi þar sem norðurlandaþjóðirnar etja kappi bæði í íþróttakeppni og gæðingakeppni og glöggt má sjá að hugur Sigurbjörns í sínu vali er einnig að sækja styrk í öfluga gæðingakeppnisknapa í bland við ríkjandi heimsmeistara og aðra knapa sem skarað hafa framúr á liðnu ári.
Hópurinn er skipaður eftirfarandi knöpum:
Ríkjandi heimsmeistarar:
- Elvar Þormarsson Hestamannafélagið Geysir
- Glódís Rún Sigurðardóttir Hestamannafélagið Sleipnir
- Jóhanna Margrét Snorradóttir Hestamannafélagið Máni
- Sara Sigurbjörnsdóttir Hestamannafélagið Geysir
Aðrir knapar:
- Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Hestamannafélagið Hörður
- Ásmundur Ernir Snorrason Hestamannafélagið Geysir
- Daníel Gunnarsson Hestamannafélagið Skagfirðingur
- Gústaf Ásgeir Hinriksson Hestamannafélagið Fákur
- Hans Þór Hilmarsson Hestamannafélagið Geysir
- Helga Una Björnsdóttir Hestamannafélagið Þytur
- Páll Bragi Hólmarsson Hestamannafélagið Jökull
- Ragnhildur Haraldsdóttir Hestamannafélagið Sleipnir
- Sigurður Vignir Matthíasson Hestamannafélagið Fákur
- Sigurður Sigurðarson Hestamannafélagið Geysir
- Teitur Árnason Hestamannafélagið Fákur
- Viðar Ingólfsson Hestamannafélagið Fákur
- Þorgeir Ólafsson Hestamannafélagið Borgfirðingur