Landsmót 2024
Umsóknum skulu fylgja greinargerð, teikningar af viðkomandi svæði og stutt lýsing á staðarháttum. Nauðsynlegt er að umsókn fylgi fjöldi hesthúsaplássa og gistirýma í nágrenni við mótssvæði. Ef fleiri en eitt félag standa að umsókninni skal koma fram hvaða félög það eru.
Umsækjendum er bent á að kynna sér vel lög og reglugerðir LH er varða undirbúning og framkvæmd landsmóta sem má finna í lögum og reglum á vef LH, www.lhhestar.is.
Eftir að umsóknarfresti lýkur munu stjórnir LH og LM ehf. boða til fundar á mótsvæðum umsækjenda. Á fundina skulu umsóknaraðilar mæta ásamt fulltrúum viðkomandi sveitastjórnar/sveitastjórnum. Á fundinum skal fara fram kynning á svæðinu af hálfu umsóknaraðila.
Miðað er við að rekstrarfyrirkomulagið verði með þeim hætti að mótshaldarar eru ábyrgir fyrir rekstrinum, sjá fyrri samninga um LM hér: https://www.lhhestar.is/is/um-lh/lm-ehf
Umsóknarfrestur er til 1. mars 2020 og skal senda umsóknir á netfangið [email protected].
Nánari upplýsingar veitir skrifstofa LH, 514-4030, [email protected].
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH