Landsmót á Skógarhólum 2018 ?
„Nú liggur fyrir að Landsamband hestamanna/Landsmót ehf kemur til með að halda landsmót á Hólum í Hjaltadal næstkomandi sumar þrátt fyrir samþykkt fyrrverandi stjórnar og samþykktir landsþings LH síðast liðið haust. Rökstuðningur núverandi stjórnar LH fyrir staðarvali landsmóts 2016 er fyrst og fremst sá að fimmtíu ár eru liðin síðan landsmót var síðast haldið á Hólum. Er það von okkar hestamanna að landsmót 2016 verði hið glæsilegasta og hvergi til sparað að gera það sem veglegast. Það er mat manna sem mættu á Landsmót á Hólum 1966 að þeir hefðu ekki séð áður slíkan gæðingakost hvort sem var í kynbótahrossum eða gæðingakeppni. Er það næsta víst að slíkt mun endurtaka sig nú á næstkomandi landsmóti enda sömu keppnisvellir undirslegnir með nútíma viðbótum þannig að allt verður eins og best verður á kosið.
Rætt hefur verið að landsmót 2018 verði haldið í Reykjavík á félagssvæði hestamannfélagisns Fáks. Hestamannafélgið Fákur hefur haldið tvö landsmót, fyrst árið 2000 og síðan árið 2012 og staðið sig með mikilli prýði í því mótahaldi. Hins vegar komast hvorki Hólamenn né höfuðborgarmenn nálægt landsmótshöldurum á Skógarhólum 1978. Þar var slegið aðsóknarmet en áætlað er að 15.000 manns hafi verið á svæðinu þegar mest var. Þá voru á mótinu fádæma góðir hestar, Náttfari frá Ytra-Dalsgerði fékk 10 fyrir skeið í kynbótadómi, Þórður Þorgeirsson að hleypa Frúar-Jarpi í 800 m stökki , Sörli frá Sauðárkróki fékk umsögnina gæðingafaðir, orð sem mikið var sparað á þessum tíma og eins og reynslan hefur kennt okkur tæpum fjörutíuárum seinna þá eru þetta orð að sönnu. Hin mikla gæðingamóðir Fjöður frá Laugarvatni fékk heiðursverðlaun á þessu móti. Þá er ótalin gæðingakeppnin þar sem hver stórstjarnan á fætur annarri raðaði sér í sæti. Eftirminnilegast í mínum huga er klárlega Steini á Hústaóftum sem blandaði sér í toppbaráttu í A-flokki gæðinga á gráa hestinum sínum Reyni frá Húsatóftum. Hiss mótsins var klárlega Skúmur frá Stórulág setinn af eiganda sínum Sigfinni Pálssyni sem kom sá og sigraði A-flokkinn með einkunnina 8,94 og vel að merkja, hesturinn kom í rekstri að austan. Eins og sjá má af þessu þá var landsmótið 1978 alger veisla fyrir unnendur íslenska hestsinns og komu þar fram margir tímamóta gripir, keppninsvellir voru frábærir og hvert metið á fætur öðru var slegið hvort sem var í kynbótadómi eða öðrum greinum. Landsmótið á Skógarhólum var einstaklega skemmtilegt mót, frábærir hestar og frábær stemming á mótsstað. Og það sem toppaði allt á þessu landsmóti var að Halli og Laddi komu sáu og sigruðu brekkuna á kvöldvökunni á laugardagskvöldinu, þvílíkur sigur!!!
Það er því afskaplega spennandi kostur að hugsa til þess að halda landsmót 2018 á Skógahólum og fagna því í leiðinni að fjörutíu ár eru síðan landsmót var haldið þar síðast.
Rökstuðningur fyrir því að halda landsmót á Skógarhólum er í fyrsta lagi að LH á keppnissvæðið, vellir eru til staðar, það þarf aðeins að hressa uppá þá og koma þeim inn í nútíman svipað og nú er verið að framkvæma á Hólum, sáralítið mál að sögn stjórnarmanna LH. Þá verður hýsing hrossa ekkert vandamál, örstutt til Harðarmanna í Mosfellssbæ og á bæi bæði í Tungunum og Laugardalnum.
Þá er vandamálunum ekki fyrir að fara hvað gistingu varðar en mikil og góð tjaldstæði eru á Þingvöllum og önnur gisting á hverju strái allt um kring, sumarbústaðir, bændagisting og hótel.
Síðast enn ekki síst er umhverfi Skógarhóla ægifagurt og verður hvergi fegurra á Íslandi.
Og það er aldrei að vita nema Halli og Laddi séu á lausu.
Hestamenn skorum á stjórn LH að endurskoða staðarval fyrir Landsmót 2018 og höldum það á Skógarhólum.“
Hermann Vilmundarson.
Ps. Og svo þarf að fara að huga að landsmóti 2024 með það bak við eyrað að þá eru 70 ár liðin síðan mótið var haldið á Þveráreyrum.
Styttu haustið með EiðfaxaTV