Landsmótsnefnd í fundferð

  • 2. september 2011
  • Fréttir

Frá Fornustekkavelli í Hornafirði. Daníel Jónsson á Gullveigu frá Feti, Stekkhóll í baksýn.

Fyrsti fundur í Hornafirði í kvöld

Fyrsti fundur svokallaðrar Landsmótsnefndar Landssambands hestamannafélaga, verður haldinn í Stekkhól, félagsheimili Hornfirðings í Hornafirði, í kvöld föstudagskvöldið 2. september og hefst fundurinn klukkan 20.00.

Á www.lhhestar.is segir að Landsmótsnefndin sé að hefja fundaherferð um landið til kynningar á skýrslu sem byggir á niðurstöðum hennar um málefni Landsmóta.

Annar fundurinn verður haldinn í Gistihúsinu á Egilsstöðum kl. 11:00 laugardaginn 3. september og þriðji fundurinn í Top Reiter höllinni á Akureyri kl. 16:00 sama dag, 3. september.

Landsmótsnefnd og stjórn LH hvetur alla hestamenn til að að sækja fundina, koma sjónarmiðum sínum á framfæri og taka þátt í umræðum um landsmót framtíðarinnar.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link