Landsmótssigurvegari á leið til Danmerkur
Börkur frá Fákshólum stóð efstur í flokki 6 vetra stóðhesta á Landsmótinu
Landsmótssigurvegarinn Börkur frá Fákshólum er á leiðinni til Danmerkur í dag. Börkur stóð efstur í flokki sex vetra á Landsmótinu í sumar þar sem hann hlaut 8,47 í aðaleinkunn, sýndur af Eyrúnu Ýr Pálsdóttur. Börkur er undan Hreyfli frá Vorsabæ II og Djásn frá Ytra-Skörðugili II en ræktendur eru þau Sigurður Óli Kristinsson og Birna Káradóttir
Nýr eigandi Börks er Pernille Hounisen en hún á búgarðinn Stald Sjelborg Strand í Danmörku. Rúnar Þór Snorrason mun verða með hestinn í þjálfun en hann og Pernille hafa átt í farsælu samstarfi.
„Klárinn verður hjá mér í þjálfun á búgarði sem ég bý á en þau eiga, Stald Årup. Þar er verið að byggja þar núna 20 hestahús, stóra reiðhöll og löglegan hringvöll,“ segir Rúnar en Stald Årup er á Vestur Jótlandi, við Ringkøbing og bætir við að þau hlakka mikið til að fá klárinn til þeirra.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Landsliðsteymi Danmerkur fyrir árið 2027 klárt