Landssýning kynbótahrossa tókst vel
Frigg frá Hólshúsum var hæst dæmda hryssan í sex vetra flokki. Hér stendur Valur Ásmundsson einn af eigendum hennar hjá henni en knapi á henni í dag var Viðar Ingólfsson
Landssýningu kynbótahrossa er lokið en hún þótti takast vel hér í blíðunni á Fjórðungsmóti. Rúmlega 60 hross mættu til leiks og tóku við verðlaunum fyrir árangur sinn á vorsýningum.
Nánar verður fjallað um Landssýningu og öll hæst dæmdu hross ársins í tímaritum Eiðfaxa og Árbók.
Nú er framundan B-úrslit í A- og B-flokki og svo tekur við kvölddagskrá.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH