Langar þig að keppa í Meistaradeildinni?
Stjórn Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum hefur opnað fyrir skráningu í svokallað uppboðssæti í fjórgangskeppni deildarinnar sem fer fram 27. janúar næstkomandi.
Lög deildarinnar segja til um að einn einstakur knapi getur keypt sér keppnisrétt, ef fleiri en einn vilja taka taka þátt mun hæstbjóðandi gilda. Hægt er að nálgast reglurnar HÉR
„1.6 Einn einstakur knapi getur keypt sér keppnisrétt í hverri grein sem 25. knapi. Hann vinnur sér ekki inn stig nema ef knapi sé í liði í deildinni þá safnar hann stigum í einstaklingskeppninni. Þátttökugjald er 50.000 kr án VSK, vilji fleiri en einn taka þátt mun hæstbjóðandi gilda. Skráningarfrestur er hádegi á skráningardegi. Stjórn skal samþykkja knapa.“
Skráningarfrestur er til 25.janúar kl. 18:00. Þeir sem hafa hug á að næla sér í sæti og keppa meðal þeirra bestu þurfa að senda tilboð á info@meistaradeild.is.