Langur biðlisti
Ómssonurinn Konsert frá Hofi vakti fyrst á sér athygli í reiðhallarsýningu í vetur þar sem hann kom fram sem afkvæmi föður síns, en nú í vor var hann sýndur í kynbótadómi á Sörlastöðum og vakti verðskuldaða athygli.
Þar hlaut hann 8,30 í aðaleinkunn sem klárhestur og þar af 8,48 fyrir sköpulag og 8,17 fyrir kosti. Hæst hlaut hann 9,5 fyrir höfuð, tölt og vilja/geðslag og 9,0 fyrir fegurð í reið og samræmi.
Í samtali við aðstandendur hestsins er mikil aðsókn í hann og talsverðir biðlistar en hann verður í girðingu hjá Dalamönnum eftir landsmót.
Það má með sanni segja að Konsert sé stjarna kynbótadómanna af því sem komið er og er hann strax orðinn einn af vinsælustu stóðhestum landsins 4 vetra gamall.
IS2010156107 Konsert frá Hofi
Örmerki: 352098100025613
Litur: 6520 Bleikur/fífil/kolóttur stjörnótt
Ræktandi: Eline Manon Schrijver, Jón Gíslason
Eigandi: Goetschalckx Frans
F.: IS2003181962 Ómur frá Kvistum
Ff.: IS1995184651 Víglundur frá Vestra-Fíflholti
Fm.: IS1997287042 Orka frá Hvammi
M.: IS2004256111 Kantata frá Hofi
Mf.: IS1991158626 Kormákur frá Flugumýri II
Mm.: IS1997256113 Varpa frá Hofi
Mál (cm): 146 – 135 – 140 – 64 – 144 – 35 – 49 – 43 – 6,8 – 30,5 – 19,0
Hófa mál: V.fr.: 8,6 – V.a.: 8,4
Sköpulag: 9,5 – 8,5 – 7,5 – 9,0 – 8,5 – 7,5 – 8,5 – 7,5 = 8,48
Hæfileikar: 9,5 – 8,0 – 5,0 – 8,5 – 9,5 – 9,0 – 6,0 = 8,17
Aðaleinkunn: 8,30
Hægt tölt: 8,5 Hægt stökk: 7,5
Sýnandi: Agnar Þór Magnússon
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH