Lárus Hannesson hlaut gullmerki LH

  • 31. október 2021
  • Fréttir

Ólafur Þórisson, Lárus Ástmar Hannesson og Stefán Logi Haraldsson. Mynd: Facebook

Var formaður Landssambandsins í sex ár

Fyrrverandi formaður LH, Lárus Ástmar Hannesson, var sæmdur gullmerki LH í gær á formannafundi Landssambandsins vegna aðkomu hans að félagsmálum hestamanna. Lárus var m.a.  formaður sambandsins í 6 ár.

„Það getur enginn náð árangri í félagsmálum nema hafa gott fólk með sér en það hafði ég þau ár sem ég var formaður. Frammi á gangi rakst ég á tvo sem eru í miklum metum hjá mér sem félagsmálamenn já og vinir og bað Mæju að smella einni af okkur köllunum. Til hægri er Stefán Logi Haraldsson Sauðárkróki sem var í stjórninni með mér árin 2018-2020 og er núverandi varaformaður. Á vinstri hönd er kappinn Óafur Þórisson sem var gjaldkeri öll þau sex ár sem ég var formaður. Félagsmál eru óskaplega skemmtileg. Takk fyrir mig kæru félagar í hestamennskunni.“ kemur fram í stöðufærslu hjá Lárusi en þar var honum heiður og þakklæti efst í huga.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link